Skip to main content

Benný Sif Ísleifsdóttir

Benný Sif Ísleifsdóttir er með bæði BA- og MA-próf í þjóðfræði og diplóma í hagnýtri íslensku frá Háskóla Íslands. Hún kom nokkuð geyst fram á íslenskt bókmenntasvið og hefur á örfáum árum markað sér spor þar. Benný hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2018 fyrir handritið að skáldsögunni Grímu sem kom út sama ár. Gríma vakti nokkra athygli, spurðist vel út meðal lesenda og hlaut  Íslensku hljóðbókaverðlaunin, Storytel Awards. Skáldsagan Hansdætur kom út árið 2020 og hlaut strax mikið lof gagnrýnenda og var tilnefnd til Evrópsku bókmenntaverðlaunanna. Framhald Hansdætra, Gratíana, kom út árið 2022 og hlaut fádæma góðar viðtökur lesenda.. Skáldsögur Bennýjar eru örlagasögur fólks úr íslenskum veruleika, höfundur tvinnar haganlega saman sorgir og sigra sögupersónanna og lesandinn getur vart annað en hrifist með.

Viðburður með Benný Sif Ísleifsdóttur: