Skip to main content

Bragi Ólafsson

Bragi Ólafsson er leikritaskáld, ljóðskáld og prósahöfundur, búsettur í Reykjavík. Hann starfaði lengi sem tónlistarmaður og útgefandi en hefur eingöngu starfað sem rithöfundur frá árinu 2001. Bragi hefur gefið út ljóða- og smásagnasöfn, og skrifað leikrit fyrir útvarp og svið. Fimm af skáldsögum hans hafa verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og starfsfólk bókaverslana útnefndi tvær þeirra skáldsögu ársins, Samkvæmisleiki og Sendiherrann. Sú fyrrnefnda hlaut einnig Menningarverðlaun DV og Sendiherrann tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þekktasta bók Braga erlendis er án efa skáldsagan Gæludýrin sem hefur komið út á fjölda tungumála. Nýjasta bók Braga er Gegn gangi leiksins (2022).

Viðburðir með Braga Ólafssyni: