Skip to main content

Barbara Demick

Barbara Demick er margverðlaunaður bandarískur blaðamaður og rithöfundur sem er meðal annars þekkt fyrir greinar sínar um mannréttindamál og efnahags- og samfélagslegt umrót í Austur-Evrópu og Asíu. Hún stýrði Beijing-skrifstofu bandaríska stórblaðsins Los Angeles Times lengi. Demick hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir skrif sín, bæði fyrir blaðagreinar og bækur.

Demick hefur skrifað þrjár bækur. Sú fyrsta, Logavina Street: Life and Death in a Sarajevo Neighborhood, kom út árið 1996 og fjallar um Bosníustríðið og hvernig það sundraði íbúum Logavinagötunnar í Sarajevo þar sem öldum saman höfðu búið í sátt fjöldskyldur sem aðhylltust ólík trúarbrögð.

Önnur bók hennar, Engan þarf að öfunda: Daglegt líf í Norður-Kóreu (2009) vakti gríðarlega athygli og fór sigurför um heiminn. Hún kom út í íslenskri þýðingu Elínar Guðmundsdóttur árið 2013 hjá Uglu útgáfu. Í bókinni fléttast saman sögur af örlögum sex flóttamanna frá Norður-Kóreu sem segja frá daglegu lífi og grimmilegu hlutskipti í þessu einangraðasta ríki veraldar. 

Nýjasta verk Demick kom út árið 2020 og íslensk þýðing hennar hjá Angústúru árið 2021. Að borða Búdda: Líf og dauði í tíbetskum bæ í þýðingu Ugga Jónssonar. Í bókinni varpar Barbara Demick ljósi á menningu sem hefur lengi verið rómantíseruð af Vesturlandabúum sem andleg og friðsamleg. Hún sýnir hvað það þýðir raunverulega að vera Tíbetbúi í nútímanum, reyna að varðveita menningu sína, trú og tungumál fyrir óstöðvandi ofurvaldi, gripdeildum þess og viðvarandi kúgun.