Skip to main content

Salman Rushdie hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness 2024

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent í Háskólabíó í fjórða skiptið föstudaginn 13. september næstkomandi. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að eiga þátt í endurnýjun frásagnarlistarinnar en þannig hljómaði einmitt rökstuðningur sænsku Akademíunnar þegar Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955. Verðlaununum er líka ætlað að halda á lofti nafni Halldórs Laxness á alþjóðlegum vettvangi. Að þeim standa Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík, forsætisráðuneytið, menningar- og viðskiptaráðuneytið, Íslandsstofa, Gljúfrasteinn og Forlagið, útgefandi Halldórs Laxness á Íslandi. Háskóli Íslands er samstarfsaðili Alþjóðlegu bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2024.

Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2019 þegar breski rithöfundurinn Ian McEwan veitti þeim viðtöku. Tveimur árum seinna hlaut tyrkneski höfundurinn Elif Shafak verðlaunin og árið 2022 hlotnuðust þau úkraínska höfundinum Andrei Kúrkov.

Í ár hlýtur verðlaunin rithöfundurinn Salman Rushdie. Hann veitir þeim viðtöku föstudaginn 13. september. Venju samkvæmt mun forsætisráðherra afhenda Rushdie verðlaunin, sem eru peningaverðlaun að upphæð 15.000 evrum með verðlaunapeningi að auki. Halla Oddný Magnúsdóttir og Halldór Guðmundsson leiða samræður við Rushdie á sviði eftir afhendinguna.

Í rökstuðningi valnefndar, sem úkraínski rithöfundurinn Andrey Kurkov skrifaði segir:

“Nafnið Salman Rushdie er samofið stórbrotnum skáldsögum sem eru þrungnar af hárfínum og töfrandi smáatriðum, en um leið nátengt baráttunni fyrir frjálsri sköpun, frjálsri hugsun og rétti mannsins til þess að vera sjálfum sér samur.

Lesendur um allan heim þekkja ímynd Rushdies. Í rúm þrjátíu ár hefur hann skapað hrífandi skáldverk í skugga þeirrar voveiflegu ógnar sem hefur steðjað að lífi hans. Með því hefur nafn hans orðið táknrænt fyrir djörfung og óbilandi viljastyrk.

Þær skáldsögur sem hann hefur sent frá sér á þessum tíma eru heillandi, heimspekileg og upplýsandi ævintýri, ætluð lesendum sem eru reiðubúnir að nema nýjar veraldir.

Með sína samsettu, þjóðernislegu, hnattrænu og menningarlegu sjálfsmynd hefur Rushdie tekið að sér að vera leiðsögumaður fyrir lesendur og miðla til þeirra nýrri merkingu sem er stundum framandleg – skrifandi listmálari sem bætir nýjum litum og nýjum blæbrigðum í orðin sem áður virtust kunnugleg. Sögur hans eru fagrar og fjölþættar en þó ávallt auðskildar, líkt og dýrindis persnesk teppi.

Verk Salman Rushdie eru óravíður myndvefnaður sem mun áfram veita lesendum ánægju um víða veröld. Bókin Hnífur er ritgerð samin sem mótspyrna gegn tilraunum til þess að þagga niður í honum og hefur sérstöðu í höfundarverkinu. Þessi bók dýpkar munstrið með pólitískri og heimspekilegri visku sem hefur skarpeggjaða þýðingu fyrir samtímann.”

Bókin Hnífur, þar sem Rushdie lýsir banatilræðinu og afleiðingum þess, kemur út á íslensku hjá Forlaginu í þýðingu Árna Óskarssonar af þessu tilefni.

Verðlaunaathöfnin og dagskráin með Salman Rushdie verður í Háskólabíó föstudaginn 13. september og hefst hún klukkan 17:30. Öll eru velkomin og það er enginn aðgangseyrir, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir miðum í gegnum miðasöluvefinn Tix.is. Bóksala verður á staðnum þar sem hægt verður að kaupa nýju bókina, Hníf, áritaða af höfundi.

Í valnefnd Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness árið 2024 eru úkraínski rithöfundurinn Andrei Kúrkov, sem hlaut verðlaunin árið 2022, Egill Helgason fjölmiðlamaður og Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík.

Um Salman Rushdie

Salman Rushdie hefur sent frá fimmtán skáldsögur. Á meðal þeirra eru Miðnæturbörn, (sem hlaut Booker-verðlaunin og var valin besta Booker-verðlaunabók allra tíma) og Söngvar Satans. Fimm skáldsögur Rushdies hafa verið á stuttlista Booker-verðlaunanna. Rushdie hefur einnig sent frá sér sjálfsævisöguleg verk, ritgerðasöfn og smásögur. 

Salman Rushdie hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín sem hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál. Árið 2023 var hann á lista tímaritsins Time yfir hundrað áhrifamestu manneskjur ársins.

Streymi frá viðburði: https://vimeo.com/event/4567405/embed/02002194f2