Skip to main content

Opinn fyrirlestur Chimamanda Ngozi Adichie í Háskólabíó

Fyrirlestur Chimamanda Ngozi Adichie hefur verið fluttur í Háskólabíó vegna gríðarlegs áhuga.

Chimamanda Ngozi Adichie, höfundur Við ættum öll að vera femínistar og Hálf gul sól, flytur erindi við Háskóla Íslands, í stóra sal Háskólabíós föstudaginn 10. september kl. 14.00. Fyrirlesturinn sem er á dagskrá Bókmenntahátíðar er haldinn í samvinnu við RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum og Alþjóðlega jafnréttisskólann (GRÓ-GEST). Fundarstjóri er Irma Erlingsdóttir.

Chimamanda Ngozi Adichie er fædd og uppalin í Nígeríu en fluttist 19 ára gömul til Bandaríkjanna. Hún er margverðlaunuð fyrir skáldsögur sínar Purple Hibiscus (2003), Half of a Yellow Sun (2006) eða Hálf gul sól í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur og Americanah (2013). Smásagan hennar „Klefi eitt“ birtist í Afríkuhefti Smásagna heimsins (2019) auk þess sem smásagnasafnið Það sem hangir um hálsinn er væntanlegt á næstu dögum í þýðingu Janusar Christiansen.

Hún er þekkt fyrir fyrirlestur sinn We Should All Be Feminists sem var gefinn út á bókarfomi árið 2014 og kom út í íslenskri þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur undir titlinum Við ættum öll að vera femínistar. Dear Ijeawele, or A Feminist Manifesto in Fifteen Suggestions var gefin út árið 2017 og nýjasta bók hennar, Notes On Grief, sem fjallar um föðurmissi, er nýútkomin. Verk hennar hafa verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál.

Húsið opnar kl. 13.00. Skráning er á staðnum í samræmi við samkomutakmarkanir: Gestir verða að skrá sig í sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri og nota andlitsgrímu.