
Skáld frá Slóvakíu lesa úr verkum sínum ásamt höfundum af erlendum uppruna á Íslandi sem stigið hafa inn á íslenskan ritvöll á síðustu árum.
Í umræðum verður athyglinni beint að stöðu bókmennta í Slóvakíu og Mið-Evrópu og hvort staðan sé önnur á Íslandi. Jafnframt verður rætt um hlutverk skáldsins á umbrotatímum, mikilvægi skáldskapar fyrir minnihlutahópa og hvernig það er að vera höfundur af erlendum uppruna á Íslandi.
Viðburðurinn er skipulagður af Gunnarsstofnun og Rithöfundasambandi Íslands í tengslum við verkefnið „Epic Residencies“ sem er stutt af Uppbyggingarsjóði EES og snýr að menningarsamstarfi Íslands, Slóvakíu og Noregs. Yfirskrift viðburðarins vísar í Victor Hugo: „Það er ástæðulaust að þegja þó að ekki sé hlustað á þig“.