Skip to main content
21. apríl, 2023
15:00

Alsírski rithöfundurinn Boualem Sansal fjallar hér í fyrirlestri um stöðu mála í Alsír. Hvernig er að starfa sem rithöfundur þar í landi, eru höfundum settar miklar skorður í störfum sínum og hver er afstaða stjórnvalda? Hvernig hefur almenningur það í Alsír og hvernig birtast aðstæður þeirra í skáldverkum frá Alsír? 

Fyrirlesturinn er skipulagður í samstarfi við Alliance française á Íslandi og fer fram á frönsku. Á eftir spjallar Friðrik Rafnsson við höfundinn.