Skip to main content

Sænski rithöfundurinn Nina Wähä hefur gefið út þrjár skáldsögur í heimalandi sínu og er auk þess leikkona og söngkona í indie rokkbandinu Lacrosse.

Þriðja skáldsaga Ninu Wähä, Ættarfylgjan, kom út í Svíþjóð árið 2019 og hlaut einróma lof gagnrýnenda og frábærar viðtökur lesenda. Sagan sló rækilega í gegn það árið, hún var meðal annars tilfefnd til fjögurra helstu bókmenntaverðlauna Svía, þ.á.m. August-priset og hreppti Sveriges Radio Romanpris.

Ættarfylgjan kom út í íslenskri þýðingu Tinnu Ásgeirsdóttur árið 2020 og hefur einnig hlotið góðar viðtökur hér á landi. Sagan segir frá hinni skrautlegu Toimi-fjölskylda sem býr  við nyrstu landamæri Finnlands og Svíþjóðar og einkennist sagan af mikilli frásagnargleði þar sem gleði og sorg vega salt.

Hlutverk listar á okkar tímum

Sögur af jaðrinum