Skip to main content

Vigdis Hjorth

Höfundurinn Vigdis Hjorth er ein sterkasta rödd norskra samtímabókmennta. Hún ólst upp í Osló og lærði heimspeki, bókmenntafræði og stjórnmálafræði. Hún gaf út sína fyrstu bók, barnabókina Pelle-Ragnar i den gule garden, árið 1983 og fékk fyrir hana bókmenntaverðlaunin Kulturdepartementets pris. Síðan þá hefur hún gefið út fjölda skáldsagna, barnabóka og greina og meðal annara unnið til fjölda verðlauna. Skáldsagan Arv og miljö er líklega þekktasta verk Hjorth og hefur verið þýdd á fjölda tungumála. Í henni fjallar Hjorth um konu sem stendur í erfðadeilu við fjölskyldu sína og ofbeldi æskuára aðalpersónunnar. Sterklega er gefið í skyn að bókin sé að hluta til byggð á lífi höfundarins, en látið er liggja á milli hluta hversu langt það nær. Arv og miljö vakti mikið umtal og úr varð heilmikið samtal um siðferði og áhrif listar sem þar sem línan milli skáldskapar og raunveruleika er afmáð. Systir Hjorth skrifaði í kjölfar útgáfu Arv og miljö sína eigin skáldsögu, sem fjallar um rithöfund sem slítur fjölskyldu sína í sundur með upploginni skáldsögu um ofbeldi af hendi föður síns. Hjorth hefur unnið til fjölda verðlauna og verið tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. 

Dagskrá: Mörk skáldskapar og raunveruleika.