Skip to main content

Júlía Margrét Einarsdóttir

Júlía Margrét Einarsdóttir er með MA gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands og MFA gráðu í handritagerð frá New York Film Academy. Júlía hefur skrifað og gefið út fjölmargar smásögur, örnóvellu hjá Partus press og gegnt hlutverki Hinsegin skálds hinsegindaga 2015. Hún sló eft­ir­minni­lega í gegn með sinni fyrstu skáld­sögu, Drottn­ing­unni á Júpíter (2018). Árið 2021 kom út skáldsagan Guð leitar að Salóme sem lifnar við á sviði á Landnámssetrinu vorið 2023. Samhliða skrifum starfar Júlía við dagskrárgerð í útvarpi.

Viðburður með Júlíu Margrét Einarsdóttur: