
Erika Fatland er norskur mannfræðingur sem hefur nýtur mikilla vinsælda fyrir óskálduð verk sín en Fatland hefur skrifað sjö bækur sem hafa hlotið fjölda verðlauna og verið þýddar á meira en tuttugu tungumál. Hún vakti fyrst athygli árið 2015 með bókinni Sovetistan, þar sem hún segir frá ferðum sínum um fyrrum lýðveldi Sovétríkjanna sem bera endinguna -stan. Í bókinni Grensen frá árinu 2021 segir hún ferðum sínum umhverfis Rússland þar sem hún ferðaðist í gegnum öll lönd sem eiga landamæri að Rússlandi. Erika Fatland er á meðal vinsælustu höfunda Noregs sem skrifa óskáldað efni.