
Brynja Hjálmsdóttir er skáld og rithöfundur. Hún fæddist í Reykjavík árið 1992.
Hún er handhafi Hvatningarverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur og Ljóðstafs Jóns úr Vör, sem hún hlaut árið 2022 fyrir ljóðið Þegar dagar aldrei dagar aldrei.
Fyrir sína fyrstu bók, Okfrumuna (2019), fékk Brynja tilnefningu til Fjöruverðlaunanna og hlaut Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslanna. Okfrumunni var meðal annars lýst sem „einni áhugaverðustu ljóðabók ársins“ í ritrýni Soffíu Auðar Birgisdóttur, sem sagði jafnframt:„Sjaldgæft er að sjá svo sterkt byrjandaverk sem þessa bók“.
Kona lítur við, sem kom út 2021, fékk tilnefningu til ljóðaverðlauna Maístjörnunnar.
Fyrsta skáldsaga Brynju, Friðsemd, kom út árið 2024. Hún var lofuð af gagnrýnendum og valin ein af skáldsögum ársins í Bóksalaverðlaununum.