Skip to main content

Heiðursverðlaun þýðenda veitt í fjórða sinn

Heiðursverðlaunin Orðstír voru veitt í fjórða sinn föstudaginn 10. september. Forseti Íslands afhenti verðlaunin á Bessastöðum, en verðlaunahafar í ár eru Tina Flecken og Tone Myklebost. 

Við sama tækifæri voru þau Regina Kammerer og Christopher MacLehose sæmd hinni íslensku fálkaorðu fyrir öflugan stuðning við útgáfu íslenskra bókmennta í þýskum og enskum þýðingum og kynningu íslenskrar menningar á erlendri grundu.

Orðstír, heiðursverðlaun fyrir þýðingar íslenskra bókmennta á erlendar tungur, eru afhent annað hvert ár í tengslum við Bókmenntahátíð. Viðurkenningin er veitt einstaklingum sem hafa þýtt verk úr íslensku á annað mál með vönduðum hætti og með þeim árangri að aukið hafi hróður íslenskrar menningar á erlendum vettvangi.

Þýski þýðandinn Tina Flecken hefur um árabil unnið ómetanlegt starf við að færa þýskumælandi lesendum íslenskar bókmenntir heim. Meðal þýðinga Tinu, sem þýtt hefur tugi íslenskra bóka af fjölbreyttum toga, má nefna verk eftir Andra Snæ Magnason, Yrsu Sigurðardóttur, Sigríði Hagalín Björnsdóttur, Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Sjón.

Tone Myklebost hefur í um 30 ár þýtt bækur íslenskra höfunda yfir á norsku við góðar viðtökur og hlaut árið 2019 verðlaun norsku þýðendasamtakanna fyrir störf sín. Tone hefur meðal annars þýtt verk þeirra Jóns Kalmans Stefánssonar, Einars Más Guðmundssonar, Halldórs Laxness, Gerðar Kristnýjar og Auðar Övu Ólafsdóttur.

Þýðingar þessara mikilsvirku kvenna hafa ratað til ótal lesenda á þýsku og norsku málsvæðunum, kynnt þá fyrir íslenskum bókmenntum og þar með opnað dýrmætar dyr milli landa. Báðar hafa þær eftirtektarvert vald á blæbrigðum ólíkra skálda og bókmenntagreina. Þær eru einkar vel að Orðstír komnar.

Að ORÐSTÍR standa Miðstöð íslenskra bókmennta, Bandalag þýðenda og túlka, Íslandsstofa, embætti Forseta Íslands og Bókmenntahátíð í Reykjavík. Í stjórn að þessu sinni sátu fyrir hönd þessara aðila þau Salka Guðmundsdóttir, Guðrún C. Emilsdóttir, Kristjana Rós Guðjohnsen, Örnólfur Thorsson og Stella Soffía Jóhannesdóttir.