Skip to main content
26. apríl, 2025
16:00

OFF VENUE

Kvikmyndasýning og samtal við höfund

Sýning á ljósmyndum og myndbrotum úr verkinu Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttir stendur yfir í Slökkvistöðinni 24/4-4/5 og í tilefni bókmenntahátíðar verður kvikmyndin Jarðsetning, sem kallast á við samnefnda bók höfundar, sýnd í fullri lengd. Að sýningu lokinni leiðir Einar Falur Ingólfsson samtal við Önnu Maríu um verkið en í því er niðurrif stórhýsis Iðnaðarbankans við Lækjargötu sögusvið samfélags og einstaklinga. Stigið er inn í bygginguna þar sem við mætum afli vélarinnar og kröftum náttúrunnar, verðum vitni að niðurrifi og upplausn bankans með daglegt líf borgarinnar í bakgrunni. Ljósmyndirnar á sýningunni fanga augnablik í stöðugri hringrás, opnanir, lokanir, efni og strúktúra sem eru í senn grófir og fíngerðir, sterkir og viðkvæmir í verki sem markar ákveðin endalok en um leið óumflýjanlegt upphaf.