Skip to main content

Andrev Walden

Andrev Walden er sænskur blaðamaður og teiknari sem býr í Stokkhólmi og starfar sem dálkahöfundur hjá Dagens Nyheter, einu fremsta dagblaði landsins.Hann sló í gegn með fyrstu skáldsögu sinni, Þessir djöfulsins karlar, sem kom út á íslensku hjá Benedikt í þýðingu Þórdísar Gísladóttur. Bókin hlaut helstu bókmenntaverðlaun Svía, August-verðlaunin, og vakti mikla athygli hér á landi og annars staðar.